miðvikudagur, febrúar 21, 2007

Pay-day


Það var öskudagur í dag. Valur Kári dulbjó sig sem Jón Spæjó. Gerfið fólst að mestu leiti í stórri slaufu, teiknuðu skeggi og vasaljósi. Hann var himinnlifandi yfir tilstandinu.
Á leikskólanum voru ýmsar kynjaverur, allt frá Stubbum upp í styrðar Sollur.
Seinnipartin var síðan frábær öskudagsskemmtun á vegum húsfélagsins.

Það vakti athygli okkar Hörpu hve ótrúlega mörg börn voru í keyptum tilbúnum búningum. Það voru áræðanlega 90% krakka í keyptum búningum, og ótrúlega margir þeirra eflaust kostað meira en 5þús.kr.

Hvað varð eiginlega um heimagerða búninga? Hafa foreldrar ungra barna engan tíma, ekkert hugmyndarflug, og efni á að spandera í dýra buninga?

Engin ummæli: