Ekki Hérastubbur bakari
Harpa útskrifast sem hjúkrunarfræðingur á morgun. Af því tilefni verður haldin veisla fyrir nánustu fjölskyldu. Við Harpa pöntuðum köku frá Jóa Fel bakaríinu á kleppsvegi þar sem á verður prentuð myndin hér til hliðar.
Í kvöld fór ég að stressast; hvað ef kakan yrði ekki tilbúin á morgun? Harpa róði mig með því að hún hefði fengið svar frá Jóhanni Felixissyni til að staðfesta pöntunina.
"Hver er það? Bakarinn?" spurði ég á móti.
Harpa horfði á mig smá stund og endurtók: "Jóhann Felissson."
Þá kveikti ég.

2 ummæli:
Kakan sem þið pöntuðu var rosa svona ding dong
svo heitir hann Jóhannes ;)
Skrifa ummæli