Knüßbar knütle
Ég hef undanfarin misseri verið að reyna fyrir mér í sönglaga gerð, sem er nýtt fyrir mér. Textar hafa svosem aldrei verið neitt stórmál fyrir mig. En hvað um það. Þeir sem þekkja mig vel vita að eitt orð hefur heltekið mig síðustu ár. Það er orðið knüßbar (eða knússbarr upp á íslenska stafsetningu). Ekki man ég hvaðan það orð kom eða hvernig mér datt það í hug, en fljótlega bættist við orðið knütle, eða semsagt knüßbar knütle. Systir mín sem búsett er í Þýskalandi hefur athugað þessi orð og komist að þeirri niðurstöðu að þau eru ekki til í þessari samsetningu. Það næsta sem kemst þessu er einhverskonar kartöflukúla/bolla/frauð.
En hvað sem því líður þá bjó ég til lag og nú hef ég fylgt fordæmi Huga og leikið mér að því að festa hugverk mín á stafrænt form, þar á meðal lagið "Knüßbar knütle". Ég verð að segja að hér er hámarki sköpunar minnar náð. Hlustið bara og dæmið sjálf!
HLUSTA

3 ummæli:
Ahh! Þetta lyfti munnvikunum mínum hátt upp sem er algjörlega nauðsynlegt þegar maður er að drukkna í verkefnum.
Óskar! Þetta er schnild! :-)
Þetta er BARA frábært, you made my day:):):) Anna og co p.s. unglingum á heimilinu fannst þetta æði;)
Skrifa ummæli