Bræddur
Í gær dreif ég mig heim eftir skólann og var fagnað af konu og barni. Ég þurfti hinsvegar að bregða mér út í bóksölu og tilkynnti heimilisfólkinu það. Þá kom litli snáðinn skoppandi, togaði í úlpuna mína og sagði blíðlega með stóru fallegu augunum sínum: "Pabbi, ekki fara".
Ég fór út í bóksölu með samviskubit.

Engin ummæli:
Skrifa ummæli