miðvikudagur, nóvember 15, 2006

Bíllinn minn!


Við Smaladrengirnir fórum að skemmta á Selfossi síðustu helgi. Það er ekki frásögu færandi nema hvað að Hugi vildi koma við á bílasölu til þess að leita að Landrover. Við förum á bílasöluna og rennum meðfram bílalengjunni þegar ég skyndilega sé sjón svo magnaða að ég fékk gæsahúð upp og niður mig allan. Þarna var hann.... bíllinn minn... merktur mér! Aldrei í lífinu hef ég fundið eins sterk andleg tengsl við bíl. Þetta er Grand Cherokee, 2002 aðeins ekinn 50þús km OG HANN ER MERKTUR MÉR! Bara eitt vandamál... á einhver 2.4 millur að lána mér?

Engin ummæli: