þriðjudagur, nóvember 28, 2006

Ég var að spekúlera um tölfræðileg líkindi


Sko, ég kaupi stundum lottó, og þrátt fyrir að vera oft öruggur um að vinna þá hef ég aldrei unnið fyrsta vinning, sem er ömurlegt. Ég er einn af þeim sem gríp stundum einn lottóseðil með jóker í sjálfvali. Það sem ég hef tekið eftir er að sjálfvalið er yfirleitt mjög dreift, þ.e. tölurnar fá jafna dreifingu, til dæmis gæti sjálfval gefið tölurnar 6, 9, 13, 18 og 28. Reynsla mín af vinningstölunum er hinsvegar allt önnur en þær eru oftast í klösum. Til dæmis voru síðust vinningstölur í lotto (sem enginn var með) 12, 14, 23, 25, 30 og bónus 38. Enn augljósara dæmi eru vinningstölur í síðasta víkingalottó en það voru 9, 27, 30, 31, 32, 34 (bónus 2 og 6).

Ég stend í þeirri trú að lottó sé í rauninni eitt stórt samsæri. Ég held að líkindin á tölum í úrdrætti fari ekki saman við dreifni talna í sjálfvali. Það er pottþétt ástæðan fyrir því hve fáir vinna í hverri viku og aldrei ég, enda er það vitað mál að fólk sem velur sjálft vinnur stóru vinningana. Við sjáum þetta vel á því hve sumar sjoppur fá fyrsta vinninginn skuggalega oft, eins og í Gerplu.


Ég er sannfærður um að góður stærðfræðingur sem vel er að sér í tölfræði gæti tekið tíðnitöflu talna í eldri úrdráttum og smíðað mun áhrifaríkari sjálfvalsformúlu sem myndi skila manni vinningum. Þetta gæti hreinlega verið efni í doktorsverkefni (er það ekki Sigrún eða Erling?). Ég skal glaður vera tilraunadýr og prufa hvort ný formúla fyrir sjálfvali skili mér fyrsta vinning... helst í Víkingalottói samt.

1 ummæli:

Sigrún Helga Lund sagði...

Humm... ég hef lítið fylgst með lottóinu, en ef ég finn einhversstaðar upplýsingar um gamla drætti þá er lítið mál að prófa tilgátuna um það hvort algengasta talan hafi komið fyrir óeðlilega oft.

Hins vegar varðandi "klasa" pælinguna, þá þyrfti að skilgreina nánar hvað átt er við. Er pælingin sú að a.m.k. þrjár tölur af fimm séu ákveðið nálægt hver annarri (t.d. að mismunur stærstu og minnstu í klasanum sé minni en 5-6) o.s.frv. En um leið og það er búið að skilgreina verkefnið þá er í sjálfu sér ekki mikið mál að kanna þetta :)