mánudagur, nóvember 27, 2006

Einróma lof þjóðarinnar


Knüßbar knütle hefur sannarlega verið að slá í gegn um allt land. Hvert heimilið á fætur öðru hefur komist að því að ekkert kemst með hælana þar sem Knüßbar knütle hefur tærnar! Þið þurfið ekki að taka mín orð fyrir því, sjáið bara sjálf:

"...endanlega búinn að missa vitið..."
- Hugi Þórðarson, Apple maður

"... þegar ég var spurður hvað ég gæti gert við þetta svaraði ég: Hvað get ég ekki gert!!!"
- Gunnlaugur Sævarsson, tryggingasérfræðingur og sölumaður á fasteignasviði


"...þetta orðið uppáhaldslagið mitt. Er ekki frá því að mig langi í knússbarknúdel."
- lindablinda, Tjáningarfræðingur


"...áður fyrr var ég þreytt og slöpp en nú er líf mitt allt annað..."
- Sigríður Skovesen, heimavinnandi húsmóðir í Vesturbænum


"...lyfti munnvikunum mínum hátt upp..."
- Ragnheiður, Mastersnemi


"... ég var alltaf að lenda í vandræðum með sambærilegar vörur, en vandamálin eru nú öll úr sögunni..."
- Steinþór Steinþórsson, vélvirki


"...Þetta er schnild!"
- Stefán Arason, Tónskáld



"...ég hefði aldrei trúað því hvað einn hlutur getur breytt lífi manns..."
- Ágústa Brím, fjölmiðlafræðingur



"...fannst þetta æði;)"
- Anna, kjarnakvendi



"...ég fæ bara ekki nóg!"
- Kalli kúl, ljóðskáld og listaspíra

Engin ummæli: