miðvikudagur, ágúst 27, 2008

Hjólandi snældu vitlaus

Ég er búinn að vera duglegur að hjóla í sumar og hef reynt að hjóla sem oftast í vinnuna. Ég á heima á mörkum vesturbæjar og miðbæjar en vinnan mín er á ystu mörkum Kópavogs, steinsnar frá Garðabæ. (Eins og ég hef áður sagt hér) Þetta er því talsvert löng leið, um 10km hvora leið með tveimur erfiðum brekkum. Þetta er hörku æfing og gott fyrir hjartað. Þetta var ferlega erfitt fyrst. Í fyrstu ferðinni í vor dó ég næstum eftir að hjóla upp frá Nýbílavegi upp að Hamraborg. Æðarnar tútnuðu allar út, fæturnir sögðu NEEEEEEEEEEEEEEEIIII, ég andaði eins og físibelgur í höndum Magnúsar Vers og ég var nálægt því að kasta upp loksins þegar ég draslaði mér inn í vinnuna. Sem betur fer kom þolið fljótt og í þriðju ferð var ég farinn að komast alla leið án þess að vera búinn á'ðí þegar ég kom í vinnuna.


Síðan ég byrjaði að hjóla hafa undarlegir hlutir átt sér stað fyrir neðan mitt. Þá á ég að sjálfsögðu við fæturna, tvær. Það er svo komið að ég er með fjögur læri ef maður miðar við ummál. Kálfarnir á mér hafa bólgnað út, lærin strekkst og bossinn stífnað. Hvað ég gæfi fyrir að vera eins flottur að ofan og neðan. Þá væri ég eins og X í laginu en ekki eins og Þ. Ég hef verið að velta fyrir mér leiðum til þess að breyta þessu. Mér hefur til dæmis dottið í hug að hanna hjól sem maður hjólar með höndunum. Þá fór ég að hugsa að það væri sniðugt að maður gæt stjórnað hvaðan átakið er, hvort maður noti biceps, triceps eða hvað. Þá datt mér í hug að hjólið yrði einskomnar æfingabekkur þar sem þú skiptir um stöðu og stangir til að æfa mismunandi vöðva um leið og þú hjólar. Brillíant hugmynd... nema kannski þegar maður ætlar að hjóla þessu hálfu tonni af járni upp einhverja brekkur.

Þegar ég fór að skoða á netinu komst ég að því að til eru margar útgáfur af svokölluðum "Handcycles". Það eru semsagt hjól sem notaðar eru hendur en ekki fætur til að hjóla.

Dæmi:
Hand & foot bicycle
Hand & foot trike
Handcycle
Recumbent bicycles

Ef einhver veit um svona handhjól á Íslandi, látið mig vita. Mikið svakalega væri ég til í að prófa.

Eins og áður hefur komið fram hef ég sett stefnuna á að hjóla 500km í sumar. Ég er eins og er vel meira en hálfnaður en betur má ef duga skal. Ég er núna að æfa fyrir draumahjólaferð. Mér var nefnilega bent á brjálæðislega góða hugmynd í sumar sem á rætur sínar að rekja til snillingsins Dr.Gunna. Hann tók strætó með félaga sínum upp á Akranes og hjólaði svo Hvalfjörðinn heim. Þetta finnst mér alveg gjörsamlega brillíant. Þvílík snilld að upplifa Hvalfjörðinn á hjóli. Maður myndi aldrei nenna að hjóla fram og til baka nema með mikilli fyrirhöfn en að taka strætó og hjóla heim er frábær dags-hjólatúr. Þetta er svona 6-8 tíma túr eftir því hvað maður fer hratt yfir. Þetta eru líklega um 120km sem ætti að vera vel viðráðanlegt, þó það verði ekki auðvelt.
Mig langar að leggja af stað um næstu helgi ef veður leyfir áður en það verður orðið og kalt og dimmt til þess að fara þetta. Í versta falli ef hjól eða knapi bilar þá lætur maður bara sækja sig. Ekki langt að fara, þannig. Svo verð ég bara að vera fyrr á ferðinni á næsa ári og taka þetta almennilega á betri tíma.

Ég á að það einstaka sinnum til að vera svolítið keppnissamur (eða á mörkunum við að vera manískur). Ég hef skráð svo til hverja einustu ferð í vinnuna og stærri hjólaferðir og skráð allt sem máli skiptir. Ég hef verið að flakka fram og til baka með exel skjal til að skrá þetta og hef oft þurft að færa á milli skjala og svoleiðis. Þá rifjaðist upp fyrir mér að Google er með brilliant hugbúnað til þess að geyma ritvinnsluskjöl miðlægt á netinu. Þeir sem hafa áhuga á að fylgjast með árangrinum hjá mér geta þess vegna fylgst með hér: Hjólaferðir á Google Docs.

3 ummæli:

Nafnlaus sagði...

Ef þú ert eins og neðri parturinn af X og efri parturinn Þ ... ertu þá ekki eins og R?

Óskar Þór Þráinsson sagði...

Jú, ef ég beygi hausinn niður

Nafnlaus sagði...

R er mikið flottari stafur en X.