
Ég var mjög duglegur í síðustu viku þegar ég bættist í hóp starfsmanna FOCAL og hjólaði í vinnuna. Ég hjólaði þrisvar í síðustu viku fram og til baka og reif þannig meðaltalið almennilega upp. Það vill nefnilega þannig til að ég á ekki heima í nágreninu eins og flestir. Í síðustu viku hjólaði ég 60km og eyddi rétt um þremur og hálfum tíma í verknaðinn. Málið er að ég þarf að hjóla frá mörkum Vesturbæjar og Miðbæjar að mörkum Kópavogs og Garðabæjar um 10 km leið. Leiðin er ágæt þótt hún sé töluvert meira upp í móti í vinnuna. Þar vegur þyngst Kópavogshæðin sem ég þarf að fara yfir.
Stefnan er að reyna að hjóla 1-3 í viku í sumar þannig að ég stefni á að hjóla að minnsta kosti 500km í sumar. Eins og sannur keppnismaður er allt skráð. Hjólatími, hámarkshraði, meðalhraði, skýjafar, vindhraði, vindátt og rakastig, þannig að ég geti borið saman ólíkar ferðir eftir aðstæðum og bætt mig. Það gerir þetta ennþá skemmtilegra. Það er komið sumar!!!
2 ummæli:
Nú gæti ég verið ógeðslega montinn og sagt að ég hjóla í vinnuna alla daga alltaf (eftir að ég fékk nýja fína hjólið mitt).
En það dregur reyndar aðeins úr montinu að í vinnuna mína er bara eitthvað um 1.5km og ég er svona 2 mín að hjóla það. :P
Það er visuulega komið sumar og það er gaman að hjóla!
Velkominn í hópinn!
Passaðu þig, áður en þú veist af verðurðu orðinn húkkt :)
Skrifa ummæli