þriðjudagur, ágúst 19, 2008

Aldrei er góð vísa of oft kveðin

Ég veit að ég er ekki sá eini sem hefur vanrækt bloggið mitt undanfarið. Mér er freistað að koma með slagarann: "Ég hef ekki verið duglegur að blogga undanfarið en nú ætla ég að taka mig á"... en ætla að sleppa því. Sumarið og sólin hvetja mann ekki til að sitja inni við tölvu og þaðan að síður að setja einhver orð á lyklaborðið inn á bloggið. Ég verð samt að segja að ég hef búið til allmargar bloggfærslur í huganum sem aldrei náðu lengra. Ég ætlaði að tala um ísbirni, ljósmæður, náttúruna, skáldskapinn, vinnuna, sumarfríið og ýmsa hluti sem í hugann hafa komið. Ég skrifaði meira að segja einusinni eða tvisvar eitthvað niður, en finn það ekki núna, þegar ég leita. Þetta er búið að vera heljarinnar sumar og allt of mikið að gera til að nenna að sitja og skrifa. Ég ætla þess vegna að bara að renna eldsnöggt yfir það sem er búið að gerast síðan í vor ef einhver hefur áhuga á því.

29.maí fór ég í einskonar útskriftarhelgarferð til Glasgow. Hún kom reyndar til vegna þess að Harpa var á leiðinni á heimsþing ljósmæðra vikuna eftir téða helgi. Við drógum Hrabbí og Steina með okkur og höfðum það ofsalega gott í bongó blíðu. Við sýndum okkur á götum bæjarins og sáum aðra, brugðum okkur til Edenborgar, sem er ægifögur og áhugaverð, og fórum þar á Taste & Fun festival. Í tveimur orðum sagt, frábær ferð. Myndin hér við hliðina er að mér og Steina fyrir framan svakalegan gosbrunn rétt utan við miðborg Glasgow þar sem við sóluðum okkur einn daginn.

14. Júní útskrifaðist ég formlega úr Háskóla Íslands með B.Sc. í bókasafns- og upplýsingafræði. Nú má ég senda inn umsókn til þess að kalla mig bókasafns- og upplýsingafræðing. Ég er líka mjög stoltur af sjálfum mér að útskrifast með fyrstu einkunn sem gefur mér aðgang að framhaldsnámi eftir nokkur ár.

27.júní átti ég afmæli og varð alveg 28 ára. Þetta er mjög erfiður aldur fyrir mig. Mér finnst ég vera að eldast sem er verulega slæmt ef eitthvað er að marka að þegar maður eldist bæti maður aðeins á sig og slappist. Ég má nú ekki við því, það veit Guð og sælgætismarkaðurinn á Íslandi. Á móti er ég næst yngstur í vinnunni og þyki því unglamb þar. Svona eru aðstæður misjafnar. Afmælið lennti á sólríkum sumardag og því var slegið upp garðveislu sem sést á meðfylgjandi mynd.

20.júlí fórum við fjölskyldan norður á Landsmót Skáta sem haldið var að Hömrum skammt frá Akureyri að þessu sinni. Harpa var dagskrástjóri landsmótsins og bar því ábyrgð á allri skipulagrði dagskrá allra þáttakenda sem skiptu þúsundum eða hérumbil. Það kemur því ekki á óvart að ég sá hana lítið bæði fyrir og á mótinu en við Valur Kári höfðum það ægilega gott í 24-28 stiga hita svo til allan tíman sem við eyddum í stuttbuxum spásserandi um svæðið, Akureyri (sérstaklega sundlaugina) og nærliggjandi umhverfi. Hrabby, Steini og strákarnir þeirra komu með okkur og með þeim fórum við VK meðal annars til Hríseyjar. Sú bátsferð vakti mikla lukku hjá strákunum. Þetta var í allt 11. daga ferð til 30.júlí, þar af 5 eða 6 nætur í tjaldi en hinar næturnar gistum við hjá tengdó í sumarbústað sem þau höfðu í nágreninu. Hér eru myndir af landsmóti

Helgina 8. til 11.júlí brugðum við biki undir dekk aftur og brunuðum austur í Suðursveit, perlu undir jökli. Þetta var raunverulega eina sameiginlega sumarfríi fjölskyldunnar sem við eyddum í rólegheitum, örlítill veiði og berjatínslu. Þetta var talsverður akstur en vel þess virði því alltaf er Jökulsárlónið magnað og Suðursveit er ákaflega skemmtilegur staður. Ekki sakaði fyrir Val Kára að geta buslað, leikið sér í læknum og hamast með Huldu Maríu. Vest var að ég var nýbúinn að tæma minniskortið á myndavélinni eftir landsmótið en hafði gleymt að setja það aftur í vélina. 15mb innbyggt minni dugar skammt þegar maður vill taka fjölskyldu og landslagsmyndir og neyddist ég því til þess að nota VGA upplausn eða myndavélina í símanum en hvort tveggja er varla frambærilegt. Hér má skoða nokkrar myndir úr ferðinni.

16.ágúst átti Valur Kári 4 ára afmæli. Valur Kári hefur lengi beðið eftir þessum degi að vera loksins 4 ára en ekki 3 eins og litlu börnin á leikskólanum. Hann hefur reyndar neitað að vera þriggja ára frá því rétt eftir áramót en samþykkti að vera þriggja og hálfs. Haldið var upp á daginn með því að bjóða fyrst vinum hans og nokkrum leikskólafélögum í hádegis-afmæli. Það var mikið stuð og ofsa gaman. Síðan komu fjölskylda og vinir í heimsókn seinnipartinn. Harpa átti að vanda heiður skilinn fyrir dásamlega góðar kökur og veitingar af ýmsum sortum. (Nú gengur ekkert annað en megrun). Dagurinn var hreint út sagt frábær og vorum við öll útkeyrð í lok dags. Hér má finna myndir af deginum

17.ágúst átti frænka Vals Kára, systurdóttir mín líka 4 ára afmæli. Glöggir muna kanski eftir því að hún fæddist 10 klst á eftir Vali Kára... þeir glöggu sem mundu það ekki vita þá af því núna. Það var því eins og venjulega dagur 2 í afmæli heima hjá systur minni og fjölskyldu

Restin af sumrinu fór að mestum hluta í að vinna, vera upptekinn, eyða tíma með stráknum og hafa það ágætt. Verst að nú ferð það að verða búið. Það er fyrst núna að verða svolítið skrítið að hugsa til þess að það sé enginn skóli framundan.

Engin ummæli: