Farinn, búinn, bless.
Jæja. Í síðustu viku lauk námi mínu við Háskóla Íslands. Loksins. Nú er ég semsagt óformlega háskólamenntaður einstaklingur, en formlega útskriftin verður laugardaginn 14.júní (í amk fjögurra klukkustunda athöfn í Laugardagshöllinni).
Þeir sem ekki vita þá verð ég formlega útskrifaður með BA í Bókasafns- og upplýsingafræði, og má því nota lögverndaða starfsheitið Bókasafns- og upplýsingafræðingur (að tilskyldu leyfi menntamálaráðuneytisins sem þarf að fá).
Og hvað gerirðu með það? spyrja margir. Ég þurfti að minnsta kosti að útskýra það fyrir systur minni fyrir skemmstu en ég er ekki viss um að hún sé nokkru vísari. Það verður örugglega bara efni í heila bloggfærslu að útskýra það. Ég er nefnilega kominn í svona starf þar sem maður þarf að nota allskonar hugtök og "fyrirtækjaorð" til að lýsa því hvað maður gerir. Ekki eins einfalt og að segja "ég er læknir" eða "ég er verkfræðingur". Í örstuttumáli er ég farinn að vinna við ráðgjöf og sem sérfræðingur á sviði skjalstjórnunar hjá hugbúnaðar og ráðgjafafyrirtæki þar sem ég hef verið í hlutastarfi síðasta árið. Í starfinu felst ráðgjöf í skjalamálum hjá fyrirtækjum og stofnunum, kennsla á kerfi fyrirtækisins og hugbúnaðarþróun innan fyrirtækisins. Fyrirtækið heitir FOCAL Software & Consulting og er staðsett í Hlíðarsmáranum í Kópavoginum.
Ég hef mikinn hug á að halda upp á þennan stórmerka áfanga með miklum látum og sameina þannig útskriftar- og afmælisveislu. Það er nokkuð seint í rassinn gripið að fara að leita að sal núna. Ég auglýsi þess vegna eftir einhverjum sem þekkir til eða geti bent á lausan sal laugardaginn 14.júní þar sem hægt er að taka á móti 30-50manns á milli kl 16-01, ekki þurfi að kaupa veitingar með salnum og leyfilegt sé að koma með eigið vín. Ef ég/einhver reddar sal, þá verður stuð, stuð, stuð.
Annars er ég bara voðalega lífsglaður þessa dagana í sólinni og sumrinu, allt gott af frétta af börnum og burum. Harpa varð á föstudaginn formlega 2.árs nemi í ljósmóðurfræði, einskonar ljósmóðurkandídat og strákurinn stóri stækkar sífellt og leikur við hvern sinn fingur.

1 ummæli:
Snuff, ég verð úti 14. júní :(
En enn og aftur til hamingju með áfangann lillebró!
Skrifa ummæli