þriðjudagur, desember 11, 2007

"af því ég er svo rúllandi sterkur"

Lífið heldur áfram. Og það stoppar ekki fyrir neinum. Það er búin að vera annasöm önn hjá okkur fjölskyldunni. Harpa er búin að vera á haus síðan í haust við að læra ljósmóðurfræðinni og búin að standa sig eins og hetja. Nú er ekki nema mánuður í það að hún taki á móti fyrstu börnunum þegar hún byrjar í verknámi á Hreiðrinu. Hún er reyndar strax komin í jólafrí blessunin. Ég fæ hinsvegar að njóta vel tímasettrar prófadagskrár og mun fá að sitja við lestur uns síðasta prófinu líkur þann föstudaginn 21.desember klukkan 15:30, takk fyrir. Það er alveg ljóst hver mun sjá um jólin og jólaundirbúninginn á þessu heimili. Svo má nefna líka að til viðbótar við prófalestur er ég á fullu við að undirbúa lokaverkefnið mitt, en ég er að framkvæma rannsókn/könnun sem ég sendi út fyrstu dagana í janúar. Nóg að gera semsagt.

Valur Kári er eins og eðlilegt er afskaplega uppveðraður af öllu jólatilstandinu. Hann er orðinn svo stór eitthvað, malar út í eitt um allt og ekkert og farinn að pæla í ýmsu. Það fjölgar alltaf ýmsum gullkornum og stundum detta út úr honum furðulegustu og flóknustu orð sem maður vissi ekki að hann kynni.
Þegar við vorum að velja disk til að hlusta á í kvöld spurði ég hvort ég ætti að setja hann í. Valur Kári svarar þá:

"Nei, ég skal setja hann [diskinn] í, af því ég er svo rúllandi sterkur".

Engin ummæli: