Sarpurinn
Það er svo skrítið hvað maður verður skrítinn á prófatíma. Nú er ég búinn að vera að læra stíft síðan í upphafi desember og er búinn að fara í 2 af 4 prófum. Ég er búinn að lesa mörg hundruð síður og reikna út í það óendanlega. Ég er búinn að læra og auka þekkingu mína á ýmsum efnum alveg helling.
Ein undarleg afleiðing af þessu er að ég virðist ekki muna hverstagslega hluti. Ég gleymi einföldum hlutum, man ekki hluti sem ég ætlaði að gera, á erfitt með að einbeita mér í ákveðnum aðstæðum og virðist þola minna áreiti. Harpa hefur til bent á að ég meðtek stundum ekki það sem hún er að segja og svari ekki spurningum.
Hin hliðin á þessu er að sköpunargáfan virðist virkjast nánast út í það óendanlega. Ég er búinn að fá ótal hugmyndir að skemmtilegum hobbí-verkefnum sem gætu orðið skemmtileg ef ég gef mér tíma eftir jólin.

Engin ummæli:
Skrifa ummæli