miðvikudagur, nóvember 21, 2007

Boltaskrámur

Valur Kári er að verða þónokkuð spenntur fyrir jólunum. Líklegast man hann varla eða veit hvað jólin eru, en allir jólasveinarnir og jólaskreytingar sem eru farnar að birtast út um allt vekja mikla lukku hjá honum.
Þegar við fórum að versla síðast varð hann mjög uppveðraður af mjólkurfernunni sem skartar jólasveinunum. Í kvöld yfir matnum fórum við yfir alla jólasveinana, hvað þeir heita og hvað þeir gera.
Eftir matinn fórum við að koma okkur í háttinn en fórum í smá boltaleik. Þá segir Valur Kári:

Ég er boltaskrámur! Af því ég er alltaf að leika mér með bolta

Engin ummæli: