miðvikudagur, desember 26, 2007

Gleðileg hlaupabólujól

Kæru vinir nær og fjær

Gleðileg Jól! Hafið það sem allra best yfir hátíðarnar, etið, drekki og hafið það náðugt.
Takk fyrir allt það góða og skemmtilega á liðnu ári og hittumst oftar á næsta ári.

Með kveðju
Óskar Þór, Harpa Ósk og Valur Kári



----------------------------------------------------

Við erum búin að hafa það ágætt, litla fjölskyldan, nema hvað að Valur Kári skellti dreif í að fá hlaupabólu, sem byrjaði á aðfangadagsmorgun. Við verðum því meira bundin heima en við ætluðum og getum ekki öll farið til minnar fjölskyldu í jólaboð af hættu við að smita frænkur mínar allar. Við fjölskyldan erum þó að minnsta kosti saman og við Harpa höfum nægan tíma til þess að sinna sjúklingnum. Hann á núna nóg af nýju dóti til þess að leika sér með. Hann getur eldað mat fyrir okkur, leikið með sveitabæinn sinn eða farið í kappakstur með Ferrarí bílunum.

Engin ummæli: