Jólalagið mitt 2006 - Jólasnúlla

Að sjálfsögðu var upptakan ekki fullkominn, frekar en í fyrra, en þessi tími hentar aldrei vel til að sökkva sér niður í tónsmíðar, útsetningar og upptökur við ófullkomnar og “amatör” aðstæður. Ég er samt sáttur við að hafa kýlt á þetta.
Ég lagið mikið í undirspilið, bakraddir syngja ég og Hugi og Daníel en lagið syngur Katrín Edda Tómasdóttir Möller, lítil hæfileikarík hnáta sem ég fékk að láni úr barnakór sem Bragi Þór smaladrengur stjórnar.
Lagið mitt fjallar að þessu sinni um litla krúttið sem liggur í rúminu og reynir að halda sér vakandi á meðan hún býður eftir jólasveininum.

2 ummæli:
smá pratísk athugasemd: þú þarft ekki að semja lagið akkúrat vikuna fyrir keppnina góði! ;) Þú ættir nú baqra að setjast niður eftir próf þegar og semja jólalag fyrir næstu jól!
Strax byrjaður að plana það...
... en það gerði ég reyndar líka í fyrra ;)
Skrifa ummæli