mánudagur, desember 18, 2006

Dewey Decimal System


Á morgun er síðasta prófið (reyndar það síðara). Það er próf í Flokkun, þar sem reynir á vitneskju og kunnáttu mína að flokka bækur og annað efni eftir DDC flokkunarkerfinu (ekki eins óáhugavert og það hljómar... ég sver það!). Ég er til dæmis nokkuð öruggur um að þetta blogg mætti flokka undir 818 (Bókmenntir/Á Íslensku/ Blandað efni). Ekki viss um að ég þurfi að fara út í fínflokkun (þetta er nú bara 50% próf).



Á morgun byrja jólin síðan hjá mér. Hrönn, Helgi og Freydís komu heim í jólafrí í dag. Ég ætla sko að fara beint úr prófinu að knúsa frænku mína.... já og systur mína væntalega í leiðinni.

Engin ummæli: