Gleðileg jól og allt það

Kæru vinir og lesendur. Ég vil þakka fyrir allt gott og blessað. Ég vona að ég hafi staðið undir mínu, mér fannst þið æði.
Við fjölskyldan erum aldeilis búin að hafa það fínt. Við kláruðum prófin nokkrum dögum fyrir jól og tókst síðan á mettíma að klára allt... nema kanski að klára að taka til (en er maður nokkurntíman búinn að því? Að minnsta kosti ekki þegar maður á barn). Við tókum Þorlák rólega með smáræðis útréttingum og göngutúr niður laugarveginn í friðargöngunni þar sem við hlustum meðal annars á reglulega góða hugvekju frá íslenskri konu, sem aðflutt er frá Palestínu.
Jólahátíðin fór vel með okkur. Aðfangadagskvöld var haldið hátíðlegt hjá foreldrum mínum með systrum mínum, mökum og börnum. Þarna komu sama 8 fullorðinir, 2 börn um tveggja og hálfs og tvö ungabörn í kringum hálfsárs. Það var sko aldeilis líf í tuskunum þar, og pakkaflóðið.... vá, ég hef aldrei séð annað eins. Þeir sem hafa áhuga geta skoðað jólamyndirnar á heimasíðu Vals Kára.
Nú er framundan námskeiðshald hjá Hörpu á Úlfljótsvatni fram að helgi og þá enn meiri hátíðarhöld.
En að öðru. Ég og Harpa höfum tekið þá ákvörðun að láta loks verða að því að verða okkur úti um rafmagnsbassa og magnara til þess að hefja æfingar. Okkur hefur lengi langað að læra og æfa á bassa (og vonumst til að eignast kassabassa síðar). Okkur vantar því núna "einfaldar" og ódýrar græjur til að byrja með. Ábendingar um hvað sé gott að fá sér, hvort einhverjir þekki einhvern sem vill selja mér svona sett, eða annað eru vel þegnar.

Engin ummæli:
Skrifa ummæli