Scarface
Ég fór á stórskemmtilega árshátíð með Hörpu um síðustu helgi. Hún var á Nesjavöllum og þemað var James Bond, 007.
Ég hef því miður ekki umráð yfir Bond samkvæmisklæðnaði þannig að ég útbjó mig sem illan fjárhættuspilara sem reyndi að fá fólk til að spila við sig og um leið fjármagna hriðjuverk. Hér að neðan er mynd af þessum illa manni. (Það skal þó tekið fram að átt hefur verið við ör og augastein í myndvinnsluforriti)

1 ummæli:
Hæ, þú mátt endilega uppfæra hlekkinn yfir á mig, ég er núna með http://dabs.forvit.is
Skrifa ummæli