Hamfarir
Harpa færði mér hræðileg tíðindi á fimmtudaginn. Ég ver að viðurkenna það að ég varð alveg miður mín. Ég hefði aldrei búist við þessu og veit satt að segja varla hvað ég á að gera.
Fat Face í Kringlunni lokar!
Þetta eru hræðileg tíðindi fyrir mig og Hörpu. Ég man það eins og það hefði gerst í gær þegar Harpa kom heim úr kringlunni fyrir nokkrum árum ótrúlega kát með stóran brúnan og bláan pappapoka og sagði "Ég er búin að finna BÚÐINA". Það er nefninlega staðreynd að FAT FACE var búðin okkar. Við höfðum verið að væflast í ýmsum búðum en aldrei fundið búð sem hentaði okkur fullkomlega, en FAT FACE kom óvænt og uppfyllti allar okkar þarfir og óskir.
FAT FACE er fataverslun sem á rætur sínar að rekja til brettagaura sem fóru að hanna og selja boli á kvöldin svo þeir gæti eytt sem mestum tíma í brettin á daginn. Fatalínan er þægileg, endingagóð og frjálslega fín. Fötin eru lituð með náttúrulegum aðferðum og eru oft bæði casual og fín. Það leið ekki á löngu fyrr en öll okkar daglegu föt voru úr Fat Face. Ég held ég geti alhæft að um 80% minna fata og um 90% Hörpu klæða sem við notum að staðaldri séu úr FAT FACE. Þaðan kemur Óskars "look" síðustu ára.
Við erum semsagt í öngum okkar því við vitum ekki hvar við eigum að versla föt eftir að þeir loka. Kanski verðum við þá bara að fara til útlanda að versla í Fat Face þar?
Það er þó huggun harmi gegn að núna er 70% afsláttur af ölli í búðinni þangað til þeir loka. Ég brá mér og verslaði buxur, stutt- og síðermabol, rennda peysu og skyrtu og borgaði aðeins rétt um 8500kr fyrir. Geri aðrir betur. Er að spá í að fara aftur áður en lokar og verða mér út um annað sett.

Engin ummæli:
Skrifa ummæli