föstudagur, september 12, 2008

Massív snilld og magnaður árangur

Alltaf finnur maður eitthvað skemmtilegt á netinu. Vinnufélagi minn dundaði sér eitt kvöldi að skoða hvernig samstarfsmenn okkar hefðu litið út ef þeir hefðu útskrifast á einhverjum tilteknum árum. Fyrir tilstilli www.yearbookyourself.com er það fljótgert og fáránlega fyndið. Hér til hliðar sjáið þið hvernig ég hefði getað litið út ef ég hefði útskrifast árið 1975 (sem eins og margir vita hefur verið langþráður draumur minn).
Hér er líka tengill á mína síðu þar sem er að finna mynd af Hörpu og systur minni. Og hér. (þetta Homeroom kerfi er ekkert allt of fullkomið).

Prófið að setja ykkar mynd inn og setjið linkinn í comment hérna.



Að öðru er það að frétta að í gær rauf ég 500km múrinn sem var takmark sumarsins í hjólavegalengd. Ég sé hinsvegar enga ástæðu til þess að hætta núna. Ég er búinn að taka þá ákvörðun að hjóla eins lengi og færð leyfir (og jafnvel lengur). Ætli maður verði ekki að stefna á 750km áður en árið er úti? Eins og áður er hægt að fylgjast með hjólaferðum mínum HÉR

Engin ummæli: