TOYS R 4 KIDS
Það hefur væntanlega ekki farið fram hjá neinum, að minnsta kosti ekki foreldrum, opnun tveggja nýrra stórverslana með leikföng og tengda hluti; Toys „R“ Us og Just 4 Kids.
Þessar verslanir marka tímamót á sviði leikfangaverslana á Íslandi. Hingað til hefur markaður leikfanga aðallega falist í baráttu milli Hagkaupa og smærri búða út um bæinn eins og Liverpool, Leikbær og Dótabúðin. Þær hafa reyndar upp á síðkastið keypt hvora aðra hægri/vinstri svo maður man varla hver á hvað.
Ég hef nú heimsótt báðar stórverslanirnar og myndað mér nokkuð fastmótaða skoðun á þeim sem ég vil deila með ykkur sem eruð í dóta hugleiðingum.
Fyrirvari: Ég fór ekki í búðirnar með því yfirskyni að taka þær út heldur er hér á ferðinni huglægt mat eftir að hafa sótt þær báðar heim. Ég fór fyrst í Toys R Us þar sem hún opnaði fyrst og um tveimur vikum síðar í Just 4 Kids. Síðari búin líður því augljóslega fyrir það að vera borin saman við þá fyrri. Hér á eftir leitast ég þó við að meta sömu hluti og bera saman þá hluti sem stóðu uppúr á hvorum stað. Hér er ekki lagt mat á afgreiðslu á kassa eða hæfni starfsfólks, eingöngu verslunina sjálfa. Þetta er mitt mat á verslununum og endurspeglar að hluta til það að eiga strák á 4. aldursári.
--------------------------------------------
Almennt: Toys R Us er staðsett í hjarta Kópavogs á Smáratorgi, nálægt Smáralindinni gegnt Bónus og Elko í risa turninum sem verið er að reisa. Toys R Us er stærsta leikfangaverslunarkeðja heims með rúmlega 1500 verslanir í 22 löndum, þar af 33 á norðurlöndunum.
Aðgengi: Verslunin samnýtir stórt bílastæði við húsið með Smáratorgi. Vegna framkvæmda og fjölda verslana myndast oft stappa við hringtorgið að Smáratorgi og hætt er við að maður fái ekki stæði upp við verslunina. Síðar mun opna bílastæðakjallari við húsið þannig að bílastæðamál gætu batnað í framtíðinni.
Viðmót: Húsið er vel merkt versluninni og í gluggar eru merktir meðal annars með stefnu búðarinnar. Anddyri verslunarinnar er glæsilegt, rúmt og þægilegt. Í inngangi sem liggur að verslunarsvæði er rennibraut fyrir yngstu viðskiptavini. Gróflega áætlað þarf að ganga um það bil 25 metra (þar af ca 10 metra um vörusvæði) áður en hægt er að velja stefnu innan verslunarinnar. Skipulagið er nokkuð aðgengilegt. Stærstum hluta verslunargólfsins er skipt í ganga og rekka (hillusamstæður) með vörum þar sem gangarnir innihalda ákveðin þemu / aldurshópa / tegundir vara. Til dæmis gangar með dúkkum og dúkkudóti / Lego og uppbyggingatengt / bangsar o.s.frv. Margir gangar eru sérstaklega útbúnir með gólfefni, litaþema, skreytingum, hilluskrauti tengdu þema leikfanganna.
Stysta leið gegnum verslunina er gróflega áætluð um 100m. en á þeirri leið fær maður yfirsýn yfir um 80% vöruúrvalsins. Opin display (sýniseintök) á vörum eru út um alla verslun, bæði á göngum og í rekkunum sjálfum.
Verðtilfinning: Markaðssetning verslunarinnar hefur meðal annars gengið út á að auglýsa ódýrari verslun. Það er ein af þeim væntingum sem maður hefur þegar farið er í verslunina. Í anddyri liggur tilboðsbæklingur sem gefur strax tóninn. Á göngum eru tilboðshlaðar, oft með sýnishornum, tilboðsspekkar eru augljósir þannig að maður fær samstundis þá tilfinningu um að hér séu sérkjör. Tilboðsbæklingur sem auglýsir sparnað styrkir þessa tilfinningu.
Toys R Us auglýsir bæði verðtryggingu og skilafrest sem tryggingu. Það staðfestir en frekar verðlagsstefnuna. Maður fær ekki tilfinningu fyrir því að lágt verð sé á kostnað úrvals eða þjónustu.
Úrval: Úrvalið er stærsti kostur verslunarinnar. Hér eru samankomnar allar mögulegar og ómögulegar vörur tengdar börnum, krökkum og jafnvel enn fleiri aldurshópum. Hér er hægt að fá dót, húsgögn, spil, dvd, tölvuleiki, hljóðfæri og afmælis/partívörur allt á sama stað. Það er ekki hægt að komast í gegnum búðina án þess að finna gjöf handa nánast hverjum sem er.
Niðurstöður: Toys R Us er stór verslun á góðum stað sem virkar vel á mann við fyrstu kynni. Helsti kosturinn er frábært úrval með allt á einum stað. Helsti ókosturinn sem fer saman við helst kostinn er hve stór hún er sem getur verið hamlandi þegar verið er að leita að ákveðnum hlutum eða þegar maður þarf að finna eitthvað óákveðið í flýti. Toys R Us er augljóstlega með vandhugsaða stefnu, markmið og skýra sýn á framkvæmd þeirra. Einnig má hrósa því að vefsíða Toys R Us er vel framsett með öllum helstu upplýsingum og tilboðsvörubæklingi.
Dómur:
Aðgengi: 6,5
÷ Slæmt aðgengi á háannatímum
+ er í leiðinni
Viðmót: 8,5
÷ Örlítill vöruhúsakeimur
+ aðgengilegt, vel uppsett og skipulagt
Verðtilfinning: 9,5
÷ Spurning um hver raunverulegur sparnaður er (miðað við hvað?
+ Vel framsett tilboð og vel auglýst stefna
Úrval: 8,5
÷ Stundum meira magn af hverri vörutýpu á kostnað fjölbreytni
+ Gífurlegt úrval ólíkra vara
Lokaeinkun: 8,25
--------------------------------------------
Almennt: Just 4 Kids er staðsett í Garðabænum nálægt IKEA, MAX raftækjum, Bónus, BYKO og Dýraríkinu. JUST 4 KIDS er íslensk verslun að uppruna, að ég held undir Leikbæjar samsteypunni. JUST 4 KIDS nafnið virðist eiga uppruna sinn hjá eigendum.Aðgengi: Verslunin samnýtir meðalstór bílastæði með Dýraríkinu sem er í sama húsnæði. Framkvæmdum er ekki lokið enn á þessu svæði, en stæðum á ekki eftir að fjölga. Það skiptir miklu máli hvaðan maður kemur í verslunina. Ef maður kemur frá Kópavogi framhjá Golfvellinum lendir maður oft í löngum biðröðum, sérstaklega á háannatímum. Það er einnig töluvert lengra að keyra fyrir Reykvíkinga og er síður í leiðinni, þ.e. farið er sjaldnar í nálægar verslanir nema að maður búi á Garðabæjarsvæðinu.
Viðmót: Húsið er vel merkt versluninni. Anddyri verslunarinnar er ágætt og þægilegt, en það leiðir viðskiptavin beint inn í verslunarsvæði. Rétt við inngang verslunarinnar er einhverskonar hús í líki kastala sem hugsað er fyrir börn. (Vegna fjölda barna þar inni og myrkurs var ekki áhugi meðal 3ára gutta að kanna hvað væri þar að finna). Þar er veggur með rafmagnsknúnum skógardýrum sem hreifast og glerbúr með páfagaukum sem er í raun innskot frá Dýraríkinu hinumegin við vegginn. Gróflega áætlað þarf að ganga um það bil 40 metra gegnum vörusvæði áður en hægt er að velja stefnu innan verslunarinnar. Skipulagið minnir á IKEA þar sem þarf að labba í gegnum stærstan hluta af búðinni áður en komið er á kassa. Verslunargólfinu er skipt niður í ákveðin svæði. Fyrst er langur gangur eða rani sem þarf að fara í gegnum (bílar,dýr, spil og ýmiskonar dót) og síðan er búðinni skipt í ákveðin hólf sem innihalda ákveðna hópa af vörum. Til dæmis uppbyggingu (lego) og sköpun (myndlist teiknun, púsl, osfrv.), ungbarnavörur (bílstólar, ungbarnaföt, dót osfrv.), dúkkudót, barnaföt, afþreyingu, partí/afmæli ofl. Þessi svæði eru aðallega afmörkuð (lokuð af) með hillum og göngum en ekki merkt sérstaklega. Rétt við kassasvæðið er sér svæði frá Partíbúðinni með öllum tilheyrandi varningi og þar er meira að segja hægt að fá helíumblöðrur í stykkjatali.
Stysta leiðin gegnum verslunina er gróflega áætluð um 200m. en á þeirri leið fær maður yfirsýn yfir um 60% vöruúrvalsins. Takmarkað var af sýniseintökum af vörum og þau fáu sem voru til staðar voru ekki útfærð á fullnægjandi hátt (t.d stallur með bílateppi sem var næstum of hár fyrir 99cm hátt barn). Það dró einnig upplifunina niður að á einum stað sást aðeins inn í starfsmannasvæði þar sem ótal rafmagnskaplar og drasl lá á gólfinu. Það gaf til kynna að öllu hefði verið tjaslað saman á síðustu stundu og ekki verið tími til að opna fyrr en á seinustu stundu.
Við útgang verslunarinnar er kaffitería þar sem hægt er að kaupa léttar veitingar undir frumskógarþykkni.
Verðtilfinning: Verslunin hafði ekki verið auglýst sem lágvöruverðsverslunum að mér vitandi, en þar sem augljóst er að þessi verslun er opnuð í samkeppni við Toys R Us kom maður í verslunina með því hugarfari að samkeppni væri um að bjóða sem lægt verð. Enginn bæklingur var sjáanlegur í anddyri verslunarinnar. Engar tilboðsstæður voru sjáanlegar og aðeins örfá tilboðsskilti sem voru í þokkabót á mörgum stöðum hvít blöð með svörtum texta límd með límbandi á viðkomandi hillu eða vöru. Fljótt á litið virðast verð þó vera svipuð og hjá samkeppnisaðilanum. (Það vakti þó nokkra athygli þegar ein vara var verðmerkt á 4290kr sem sést hafði á um 1700kr í Hagkaupum, en þarna hlýtur að hafa verið einhverskonar gengisvilla eða kommuvilla á ferðinni). Maður fær ekki tilfinningu fyrir lágvöruverðsstefnu en gerir sjálfvirkt þá kröfu þó staðfesting á þeirri stefnu liggi ekki beint fyrir.
Úrval: Úrvalið er stærsti kostur verslunarinnar. Þessi verslun er líklegast með mesta og fjölbreyttasta úrvalið af vörum tengdum börnum, krökkum og eldri aldurshópum. Hér er hægt að fá leikföng, barnahúsgögn, barnaföt, ungbarnavörur, spil, dvd, tölvuleiki, hljóðfæri og afmælis/partívörur allt á sama stað. Það er ekki hægt að komast í gegnum búðina án þess að finna gjöf handa nánast hverjum sem er.
Niðurstöður: Just 4 Kids er leikfangaverslun sem virkar svipað á mann og stórar leikfangadeildir í stórmörkuðum. Stærsti kosturinn er að verslunin er líklegast með mesta vöruúrval á Íslandi tengt börnum. Helsti ókosturinn er skipulag verslunarinnar þar sem viðskiptavinur er þvingaður til þess að ganga í gegnum stærsta hluta verslunarinnar án þess þó að fá góða yfirsýn yfir verslunina. Þess má geta að á vefsíðu verslunarinnar er eingöngu að finna upplýsingar um staðsetningu og nafn en engar upplýsingar um hvernig hægt er að hafa samband eða hver opnunartíminn er.
Dómur:
Aðgengi: 6
÷ Misjafnt aðgengi eftir komuátt og annatímum
+ er sjaldan í leiðinni
Viðmót: 6
÷ löng leið í gegnum búðina og erfitt að fá yfirsýn
+ vörusvæði flest vel úthugsuð
Verðtilfinning: 5
÷ Fátt í versluninni eykur tilfinningu fyrir hagstæðum kjörum
+ Stærð verslunar, og tilvísanir í samkeppnisaðila benda til hagstæðra kjara
Úrval: 9,5
÷ Stundum meira magn af hverri vörutýpu á kostnað fjölbreytni
+ Gífurlegt úrval ólíkra vara og tengdra hluta
Lokaeinkun: 6,62
Persónuleg athugasemd: Ég vil koma einu vítaverðu atriði á framfæri sem setur að mínu mati dökkan blett á verslunina. Beint fyrir framan afgreiðslukassasvæðið eru nokkrar stæður af bland‘í‘poka. Ég hef mjög sterka skoðun á því sem foreldri að sælgæti eigi ekki heima í leikfangabúð og allra síst bland í poka. Að mínu mati er eingöngu verið að þvinga foreldra til þess annaðhvort að kaupa sælgæti eða standa í neikvæðri rökræðu við börn sín þegar kemur að því að bíða í röð. Ég ætla rétt að vona að þetta sé ekki meðvituð aðferð eigenda til þess að hvetja krakka til þess að vilja koma aftur. Þetta eina atriði kemur í veg fyrir að ég vilji koma þangað aftur með barnið mitt, jafnvel þó það væri laugardagur.
--------------------------------------------
Það sem mér finnst verst í þessu öllu saman eru nöfn verslananna. Toys R Us er vissulega nafn á keðju út um allan heim og þess vegna ákveðin tilverurétt eins og McDonalds eða TGI Fridays. Þarna er verið að flytja inn ákveðna hugmyndafræði og ímynd sem sköpuð hefur verið um allan heim. Nýjast samkeppniaðilinn Just4Kids má hinsvegar skammast sín verulega. Þegar íslenskur aðili tekur upp á því að reisa stóra íslenska verslun og ákveður að skíra hana ensku nafni sem hefur augljósa skírskotun í samkeppnisaðila þá getur mann grunað annað en þetta sé tilraun til þess að fylgja eftir og sýnast stór og flottur. Það var síðan hreint úr sagt hlægilegt þegar fyrirtækið auglýsti undir ensku nafni að starfsmenn töluðu íslensku. Vönduð málverndunarstefna þarna á ferðinni, eða hvað?
Í stuttu máli sagt eru báðar verslanirnar frábær viðbót við dótaflóru landsins. Toys R Us er hugmyndafræðileg útfærsla með öllu sem flutt var inn en Just4Kids er íslensk hugmynd sem örlítið vantar útá í útfærslu. Það er þó ekkert ólíklegt að ýmislegt verði þar bætt næsta árið. Þær eru nokkuð ólíkar í uppsetningu og afstöðu til úrvals og henta því að hluta til ólíkum viðskiptavinum. Það má segja að Toys R Us sé sambland af dótabúð, lágvöruverðsstórmarkaði og afþreyingarverslun á meðan Just4Kids gengur skrefi lengra og bætir „dash“ af BabySam útí súpuna.
Þegar öllu er á botninn hvolft eru nú komnir enn fleiri staðir þar sem finna má gjafir handa sínum nánustu, en ef þú þarft að skreppa snöggt og kaupa lítinn pakka fyrir frænda þinn eða frænku þá mæli ég tvímælalaust með Bókabúðinni Hugföng á Eyðistorgi sem býður í 50m2 allt frá ritföngum til „pleimó“ (Playmobil) á fínum kjörum með úrvals persónulegri þjónustu.


3 ummæli:
wóh, próftímabilið greinilega að nálgast!! Ég fór oft að púsla í staðin fyrir að lesa fyrir próf. Nú til dags bloggar fólk...!
Hahaha! Ég var að velta því fyrir mér hvort þetta væri hluti af einhverju verkefni í skólanum hjá þér en það að þú sért að byrja í prófum skýrir þetta aðeins ... ekki alveg samt. ;) Þú ert alveg met Óskar minn!
Afar fróðleg lesning samt sem áður. Ég hlakka bara til að sjá herlegheitin og bera þau saman við verslanirnar hér.
Ég ætlaði nú bara að gera stutta færslu... en síðan vatt þetta eiginlega bara upp á sig því mér fannst ég þurfa að taka fyrir svo mörg atriði og þá varð ég að fjalla um þau á báðum stöðum. :)
Svo er það hitt að nú er maður náttúrulega að verða kominn með háskólagráðu m.a. í skipulagi og framsetningu upplýsinga þannig að svona mat lendir sjálfkrafa í akademískri uppsetningu. Vona bara að sem flestir hafi gagn af. Ætla að blogga styttri færslur næst.
Skrifa ummæli