laugardagur, september 15, 2007

Nýyrði foreldrahlutverksins


Ég dáist alltaf að foreldrum. Við höfum þennan eiginleika að aðlaga tungumálið að aldri barna okkar. Krúsímús er til dæmis orð sem er í uppáhaldi hjá mér en það getur ekki beint talist til fullorðinsmáls.

Í leikskólanum í gær heyrði ég nýtt orð sem ég er að hugsa um að taka upp í daglegu máli:

„Æ elskan, ekki vera svona pirripú!“

1 ummæli:

Ragnheidur sagði...

Pirripú er einmitt notað á mínu heimili. Ég held ég hafi fyrst heyrt þetta orð í myndinni Dís.