fimmtudagur, september 27, 2007

Heimsendir

Heimsmynd mín og trú á mannkyninu féll saman í fyrradag eins og marenskaka í ofni með brotnu gleri. Í fyrradag, 25.SEPTEMBER voru fyrstu jólaseríurnar auglýstar. Og eins og það hefði ekki verið nógu slæmt, þá kom auglýsing í gær 26.SEPTEMBER þar sem fyrirtæki bauð þjónustu sína við að hengja upp jólaseríur.

Heimur versnandi fer, og ég held ég horfi ekki á sjónvarp meira fyrr en 1.des. Þetta mun klárlega ekki batna á næstunni.

3 ummæli:

Nafnlaus sagði...

Segðu.

Jafnvel spurning um að leggjast bara í híði. Samt ekki svona eplahýði.

Ragnheidur sagði...

Vá, ég hef ekki einu sinni séð jólaauglýsingu hér í USA ... hér eru allir enn að tapa sér í Halloween sem er reyndar ekki fyrr en eftir mánuð. Hins vegar er búið að stilla ýmissi jólavöru upp í mörgum verslunum.

Óskar Þór Þráinsson sagði...

Og hugsið ykkur... á UNDAN Ikea!