Ever so much...
Það er aldeilis búið að ganga mikið á undanfarið. Við fórum loksins til Þýskalands aðra vikuna í júní og höfðum það óendanlega gott, gerðum ótrulega margt skemmtilegt og trúlofuðum okkur. Fórum svo vikuna á eftir á Flúðir þar sem ég var í útivinnu og svo slöppuðum við auðvitað af í pottinum. Svo átti ég auðvitað afmæli í lok júní. Nú er vinnan tekin við, og ýmislegt fleira.
Ég á von á því að ég hripi niður aðeins nánari ferðasögu við tækifæri, en það er nú bara þannig á sumrin þegar maður er er að vinna eða að leika sér, að bloggið lendir neðarlega í verkefnaröðinni. Verð að sýna ykkur myndir samt, við tækifæri.

2 ummæli:
Noh!
Til hamingju með trúlofunina :)
Já til hamingju! Ég var ekki búin að frétta af þessu, þá hefði ég nú heldur betur smellt á ykkur kossi á sunnudagsmorguninn. Takk fyrir pössunina :)
Skrifa ummæli