Hier komme Ich!

Nú er loksins allt að gerast! Núna orðið ansi stutt í langþráða Þýskalandsferð.
Við leggjum í hann óguðlega snemma um morgun og fjúgum beint til Basil í Sviss (eða Svisslandi, eins og Gísli Marteinn talaði um þegar hann kynnti Eurovision fyrir
nokkrum árum). Þaðan er aðeins um 40 mínútna akstur í rútu til Freiburgar í Þýskalandi . Þar munum við hitta systur mína, mág og litlu frænku, en við munum gista í lítilli íbúð steinsnar frá íbúð fjölskyldunnar.
Það er ógnar margt skipulagt þó við verðum ekki lengi úti. Þar má nefna stroll um bæinn, hjólatúra um svartaskóg og nálægar sveitir, markaðsferðir, bjór"kynningar",
dýragarðsferðir, H&M, C&A, dótabúðir, ódýrar matvöruverslanir (amk miðað við Ísland) og ófáar salíbunur með Silver Star, hæðsta rússíbana Evrópu sem staðsettur er í Europapark
sem er um 40min frá Freiburg. Uss hvað ég hlakka ógurlega endalaust mikið til.
Ekki bara að loksins loksins komast í heimsókn til þýsk-búsettu-fjölskylunnar heldur hlakka ég ógurlega til að upplifa hvernig Valur Kári á eftir að upplifa allt það nýja
og spennandi sem á daga okkar drífur.
Við erum búin að fjárfesta í armbandsól til að festa á einhvern fullorðinn og strákinn svo hann stingi ekki af og týnist í útlöndum... en það á alveg eftir að koma í ljós hvernig hann mun taka því. Ég ætla að minnsta kosti ekki að missa hann úr augsýn þarna úti (sérstaklega eftir að ég festist við það að horfa á myndina "Human Trafficking" á stöð 2 í gær og fyrradag sem fjallaði á sláandi hátt um mannsal/barnaþrælkun/barnaþrælkunarmisnotkun).
En vei vei vei vei vei vei, ég ræð mér ekki fyrir kæti, nú er að verða svo stutt í útlönd!!!!

1 ummæli:
Jæja... þið eruð löngu komin frá Þýskalandi! Fær maður enga ferðasögu??
Skrifa ummæli