Gosvatn

Mér er i fersku minni að mér fannst sodavatn ógeðslegt. Mér fannst kolsýrubragðið viðbjóðslegt, vatnið of gosmikið og fáránlegt að bragðbæta það með einhverju vondu bragði. Svo bregðast krosstré sem önnur tré og nú kemst ég varla í gegnum daginn án þess að finna sódann kitla kokið. Ég held mikið upp á Selecta vatns/soda vélina í vinnunni og sodastream græjuna heima (takk aftur Anna). Það eina sem fer i taugarnar á mér er að þurfa að borga allt að 180kr fyrir vatn með gasi út úr búð.
Ég held að breytingar a smekk sé merki um þroska. Nú eldist maður með hverju árinu sem líður og hvert matvendisvígið fellur á fætur öðrum. Tómatar, bananar, kaffi, te, feta, bjór, aspas, hvítvín, síld, túnfiskur og fleira hafa lætt sér inn sem neysluvörur jafnt og þétt sem voru bannvörur einusinni, þó í mis miklum mæli. Hver veit nema koníak, gin & tonic, campari og hákarl bætist í hópinn á efri árum.

Engin ummæli:
Skrifa ummæli