fimmtudagur, febrúar 14, 2008

Langlínusamband

Það er nú bara þannig að við hjúin erum einskonar þjónustumiðstöð nákominna á okkar sviði. Ef einhvern í fjölskyldunni eða aðra góða vini vantar faglega ráðgjöf (eru með spurningar og vantar svö) í sambandi við heilsu, lyf eða barneignir þá oft hringt í Hörpu. Ef einhvern í fjölskyldunni eða aðra góða vini vantar tölvuaðstoð þá er oft hringt í mig. Við Harpa erum fús að veita alla þá aðstoð sem við getum, enda höfum við bara gaman að því að geta ausið úr okkar viskubrunnum.

Í fyrradag aðstoðaði ég góða vinkonu mína við að setja upp gott og "gilt" heimildaskráningarforrit. Með því setti ég nýtt met og stækkaði þjónustusvæðið mitt umtalsvert. Ég hafði áður þjónusta Ísland og Þýskaland (á meðan systir mín bjó í Þýskalandi) en núna gerði ég mér lítið fyrir, þræddi koparvíra og ljósleiðara yfir þvert atlandshafið og tók yfir stjórnvölin í tölvu á vesturströnd Bandaríkjanna. Svonan er tæknin stórmerkilegt.

Næsta verkefni, uppsetning á tveimur fartölvum, bíður síðan í kvöldsins.

2 ummæli:

Ragnheidur sagði...

Ameríka þakkar hjálpina! Þú manst svo bara að rukka inn greiðann við tækifæri.

Óskar Þór Þráinsson sagði...

Það var lítið. Ég myndi ekki gera þetta ef ég væri ekki svona hjálpfús og hefði örlítið gaman að þessu.

Svo má bæta við að þriðja fartölvan bættist við í kvöld. Stundum er maður svo vinnsæll :Þ