Áhugavert sjónvarpsefni á RÚV í kvöld
Klukkan 21:15 verður á dagskrá Ríkissjónvarpsins afar áhugaverð kvikmynd fyrir verðandi bókasafns- og upplýsingafræðinga.
Það er stórmyndin: The Librarian: Quest for the Spear (eða Bókavörðurinn - Leitin að spjótinu).
Hér er á ferðinni bandarísk spennumynd frá 2004 sem fjallar um bókavörð sem reynir að endurheimta töfragrip sem stolið er af safninu þar sem hann vinnur og nýtur hann aðstoðar konu sem er vel að sér í bardagaíþróttum. Leikstjóri er Peter Winther og meðal leikenda eru Noah Wyle, Sonya Walger, Bob Newhart, Kyle MacLachlan og Kelly Hu.
Myndin þykir gefa einkar greinargóða mynd af starfsvettvangi bókasafns- og upplýsingafræðinga. :Þ
IMDB.com gefur myndinni 5,9 af 10 mögulegum stjörnum (http://www.imdb.com/title/tt0412915/)
Frekari upplýsingar um myndina má finna hér: http://en.wikipedia.org/wiki/The_Librarian:_Quest_for_the_Spear
Góða skemmtun.
ps. þeir sem missa af henni í sjónvarpinu geta nú keypt hana á DVD af AMAZON


1 ummæli:
Ég vann á rosalega flottu bókasafni í Oklahoma, The History of Science Collections, þar búa margar af frumritum Galileos (þar af 6 bækur eftir hann - frumrit og hans eigin eintök!), Da Vincis, Copernicusar, Darwinds og fleira. - ásamt 50 incanabula bókum. Forstöðumaðurinn hefði pottþétt haldið í hættuför til að endurheimta gripi ef þeim hefði verið stolið!
Skrifa ummæli