Háskólanemar

Samnemendur mínir koma sífellt á óvart. Þessa önn sit ég áfanga sem heitir Aðferðarfræði III: Framhaldsefni í tölfræði. Þetta er áfangi sem krefst þess að þú sért búinn með Aðferðarfræði I og Aðferðarfræði II, sem þýðir í raun að allir nemendur í áfanganum eiga að vera amk annars árs nemar, eða útskriftarnemar eins og ég. En jafnvel þótt að í tímanum séu "sjóaðir" háskólanemar koma reglulega upp sömu spurningarnar:
"Bíddu.... kemur þetta á prófi?"
"Ha, eigum við að læra þetta?"
"Bíddu, af hverju eigum við að læra þetta?"
"Þurfum við að geta reiknað þetta?"
"Þurfum við að lesa þetta fyrir próf?
"Bíddu, segðu setninguna aftur..."
"Þarf maður að glósa þetta?"
"En við erum aldrei búin að læra þetta!"
o.s.frv. ...
Greinilegt að sumt fólk breytist lítið við það að klára grunnskóla, menntaskóla og læra í háskóla.

1 ummæli:
Þurfum við að lesa ALLA bókina? Geturðu sett inn lista yfir blaðsíðurnar sem við þurfum að lesa? Þurfum við að kunna þessa jöfnu -geta útksýrt þetta- gefurðu "partial Credit?"... annars og þriggja árs háskólanemar hjá mér.
Skrifa ummæli