þriðjudagur, janúar 22, 2008

Ekki aftur snúið / Point of no return / Milestone


Síðastliðinn föstudag sat ég fyrir framan tölvuna í annarlegu ástandi. Ég var með músarbendilinn yfir "Send hnappinum" en skalf af innan af einhverri stress-fyrir-sendinga-spennu.

Eftir nokkrar mínútur tók ég mig taki og smellti á örlagahnappinn send. Það má segja að á þeim tímapunkti hafi ég endanlega staðfest að ég ætla að útskrifast í vor. Innan nokkurra sekúndna voru um 150 bókasafns- og upplýsingafræðingar búnir að fá sendan tölvupóst með bréfi og tengli yfir á spurningalista. Sama dag sendi ég líka um 360 umslög með sama bréfi og spurningalista á pappír.


Þessi spurningalisti er semsagt hluti af lokaverkefninu mína. Með því að senda tölvupóst og póst hóf ég formlega að rannsaka starfsvettvang bókasafns- og upplýsingafræðinga. Markmið rannsóknarinnar er að gefa heildstæða mynd af fjölbreyttum og ólíkum starfsvettvangi bókasafns- og upplýsingafræðinga. Ég skoða breytur eins og framhaldsmenntun, tegund vinnuveitanda, starfsþætti, menntunarkröfur starfa og laun.


Það er eitthvað svo "fullorðins" við það að senda út viðamikla rannsókn til heillar starfstéttar sem ég verð senn hluti af ekki síst vegna þess hve mikill áhugi er fyrir þessum upplýsingum. Það sannaðist heldur betur eftir að ég sendi tölvupóstinn því það liðu ekki nema 3 mínútur frá því að ég sendi tölvupóstinn og ég fékk fyrsta símtalið.


Ég get varla hugsað um annað þessa dagana og fylgist nákvæmlega með svörunum sem mjatlast inn. Fyrstu viðbrögð eru mjög góð, 13% búnir að svara á fyrstu 5 dögunum en ég vonast til að margfalt fleiri muni svara í vikunni.


Nú er bara að vera þolinmóður þangað til að alvöru vinnan hefst við að vinna úr þessum gögnum.

3 ummæli:

Nafnlaus sagði...

Til hamingju lilli bró! En af fenginni reynslu geturðu alveg haft ítrekunarbréfið tilbúið :D ! En gangi þér sem allra best!!!

Ólöf sagði...

Gangi þér vel! Mun hugsa til þín við úrvinnsluna ;)
Kveðja,
Ólöf

Sigrún Helga Lund sagði...

Til hamingju! Ekki hika við að hafa samband ef ég get hjálpað þér eitthvað með tölfræðina ;)

Knúsaðu nú ykkur öll frá okkur í Stokkhólmi :)