Google Reader
Ég uppgötvaði um daginn mjög sniðuga þjónustu sem Google býður uppá. Þjónustan kallast "Google Reader". Þessi þjónusta gerir manni kleyft að fylgjast með fréttaveitum og bloggum sem bjóða upp á streymi (RSS, ATOM, eða einhverskonar "feed"). Ég mæli með þessari þjónustu til þess að fylgjast með blogginu mínu og skiptileiknum.
Ég nota sjálfur Reader til þess að lesa þau mýmörg blogg sem vinir og kunningjar halda. Eini ókosturinn er að nokkrir vinir mínir eins og til dæmis Dabs og Rabó bjóða ekki upp á streymi. (HINT HINT HINT!) Það gerir það að verkum að ég les þeirra blogg sjaldnar, bara þegar ég man eftir því.
Það er einfalt að skrá sig fyrir þjónustunni og síðan þarf bara að fara í "Add subscription" og slá inn slóðinni: http://einlitillyklakippa.blogspot.com/ eða hvaða slóð að bloggi/fréttaþjónustu sem þið fylgist með.

3 ummæli:
JÁ ÞAÐ ER AF ÞVÍ AÐ HELVÍTIS FÓLK.IS BÝÐUR EKKI UPP Á RSS STUÐNING!!!!
Verður allt komið í lag þegar nýja vefsíðan mín verður komin í loftið. Sem mun gerast bráðlega.
Iss piss ... Safari í makkanum mínum er með þetta innbyggt og ég bara sé alltaf í toppnum hvort einhver á RSS listanum mínum er búinn að skrifa eitthvað. ;)
Veistu ekki að ég er ekki nema hálfsjálfbjarga í tölvumálum? Þýðir ekkert að hinta bara - þarf nákvæmar leiðbeiningar og þá skal ég koma til móts við þessa ósk þína. ;)
Skrifa ummæli