miðvikudagur, september 20, 2006

Og sagan heldur áfram


Nú í haust lenti ég í klassískri kreppu. Tímaleysi og þar af leiðandi bloggleysi. Það þýðir þó ekki að skiptaleikurinn hafi legið niðri á meðan. Mér hafa borist tilboð í sindra könnuna og eftir að hafa vegið og metið þau er hér með staðfest að næstu skipti munu fara fram á allra næstu dögum. Hluturinn sem um ræðir er nauðsynlegur inn á hverju heimili. Fylgist með og verið fyrst til að bjóða í þennan nytsama hlut!

Af mér er allt gott að frétta. Ég eignaðist glænýja frænku síðastliðinn laugardag, Eyrúnu Bjarnadóttur (ATH myndir væntanlegar á næstu dögum). Nú á ég semsagt þrjár krúttlegar litlar frænkur til að leika við.

Ég er byrjaður í skólanum aftur, en tók þá ákvörðun í haust að stokka upp í námsstefnunni hjá mér. Í staðin fyrir að stefna á Viðskiptafræði með Upplýsingatækni er ég núna að læra Bókasafns- og Upplýsingafræði með Viðskiptafræði sem aukagrein. Þetta er ótrúlega spennandi nám sem gengur fyrst og fremst út á greiningu, framsetningu, úrvinnslu, flokkun og notkun upplýsinga. Ég er til dæmis strax búinn að koma auga á námsleiðir sem henta mínum framtíðarmarkmiðum og stefnu í atvinnumálum. Það er viðmótshönnun (framsetning upplýsinga t.d. á vefsíðum) og Upplýsinga- og skjalastjórn hjá skipulagsheildum (upplýsinga-, skjalastjórn og fl. í innviðum fyrirtækja sem tengist inn á rafræn upplýsingakerfi og gagnagrunna). Alla vega mjög áhugavert og skemmtilegt. Stefni ekki á að verða bókasafnsfræðingur sem slíkur, þó ég verði það auðvitað líka. Ef einhvern vantar upplýsingar, þá vitið þið í hvern þið eigið að hringja! ;)

1 ummæli:

Guðrún sagði...

Vá!
Líst rosalega vel á þetta nám!
Búði þig undir að verða misnotaður ;)